Ungir hnefaleikamenn keppa fyrir Íslands hönd á Pirkka-mótinu í Finnlandi
- HNÍ
- 5 days ago
- 1 min read
Hnefaleikasamband Íslands sendir sjö efnilega keppendur á alþjóðlega hnefaleikamótið Pirkka Tournament sem fram fer í Finnlandi nú um helgina. Mótið er vel þekkt á Norðurlöndum og býður ungum og upprennandi hnefaleikamönnum tækifæri til að mæta sterkum andstæðingum og öðlast dýrmæta reynslu.
Keppendur Íslands eru:
Björn Jónatan Björnsson
Alejandro Cordova
Tristan Styff Sigurðarsson
Sölvi Steinn Hafþórsson
Kormákur Steinn Jónsson
Hilmar Þorvarðarson
Ronald Bjarki Mánason
Með í för eru þjálfararnir Davíð Rúnar Bjarnason, Kjartan Valur Guðmundsson og Benedikt Gylfi Eiríksson sem styðja hópinn með leiðsögn og reynslu.
Við óskum hópnum góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með árangri þeirra í keppninni!

Comments