Beint í efni

Fræðsla og þjálfun

Menntun þjálfara

Þjálfaramenntun í hnefaleikum byggir á þjálfaramenntun ÍSÍ ásamt sérgreinanámi HNÍ.

Þjálfaramenntun ÍSÍ

Þjálfaramenntun ÍSÍ er áfangaskipt fræðslukerfi í fimm þrepum. Fyrstu þrjú þrepin eru hvert um sig 120 kennslustundir að lengd, en þrep 4 og 5 eru á háskólastigi. Almenni hluti námskeiðanna fer fram í fjarnámi.

Þjálfaramenntun HNÍ

Þjálfaramenntun hjá HNÍ skiptist í almennan hluta og sérgreinahluta. Almenni hlutinn er sóttur í gegnum fræðslukerfi ÍSÍ en sérgreinahlutinn snýr að hnefaleikum sérstaklega - tækni, þjálffræði, keppnisreglum og öryggi iðkenda.

Reglugerð um þjálfara skilgreinir réttindi og kröfur til þjálfara hjá aðildarfélögum HNÍ. Nánari upplýsingar er að finna hjá fræðslunefnd HNÍ.

Tengd skjöl

  • Reglugerð um þjálfara

    Samþykkt í desember 2025, tók gildi 1. janúar 2026. -

  • Hegðunarviðmið fyrir þjálfara

    Samþykkt í desember 2021. -