Beint í efni

Sambandið

Ársþing

Ársþing er æðsta vald Hnefaleikasambands Íslands. Þingið er haldið árlega og þangað senda aðildarfélögin fulltrúa sína.

Á ársþingi er farið yfir skýrslu stjórnar, ársreikning liðins árs og fjárhagsáætlun komandi árs. Þar eru jafnframt teknar fyrir lagabreytingar, mótaðar áherslur í starfi sambandsins og kosið í stjórn til næstu tveggja ára.

Síðasta ársþing fór fram laugardaginn 9. maí 2026 í sal ÍSÍ í Laugardal. Þar var meðal annars samþykkt ný afreksstefna 2026-2028, fjallað um landsliðsstarf, diplómastarf, dómaramál og mótahald, og ný stjórn kjörin.

Nánar

Ársþing Hnefaleikasambands Íslands 2026

Ársþing HNÍ fór fram 9. maí 2026 í sal ÍSÍ í Laugardal. Farið var yfir starfsárið, samþykktar lagabreytingar og kosin ný stjórn.

Fundargerðir ársþinga, ársreikningar og ársskýrslur eru aðgengilegar á skjalasíðu sambandsins.