Sambandið1 mín lestur
Ronald Bjarki keppir á BOXAM á Spáni
Ronald Bjarki Manason er mættur til La Nucía á Spáni þar sem hann keppir fyrir Íslands hönd á hinu sterka alþjóðlega BOXAM-móti. Með honum í för er Davíð Rúnar, landsliðsþjálfari Hnefaleikasambands Íslands.
Höfundur: HNÍ

BOXAM fer fram dagana 31. ágúst–6. september og er eitt stærsta alþjóðlega mót ársins fyrir yngri aldursflokka. Keppt er í U15, U17 og U19 og eru keppendur frá fjölmörgum þjóðum mættir til leiks.
Ronald keppir í U19, -50 kg flokki og hefur nú verið dregið í mótið. Fyrsti mótherji hans verður Sami Jeddi frá Frakklandi.
Bardaginn fer fram þriðjudaginn 1. september í hring A og er bardagi númer 13 á dagskránni. Keppnislotan hefst kl. 16:00 að staðartíma.
Sigurvegari viðureignarinnar tryggir sér sæti í næstu umferð þar sem Mexíkómaðurinn Alan Ocampo Cano bíður.
🥊 Beint streymi
Hægt verður að fylgjast með bardögum í hring A í beinu streymi á YouTube:
https://www.youtube.com/live/ICh2G0pi4KE?si=1vh3XRvmLhcqcxQc
Við óskum Ronald og Davíð Rúnari góðs gengis á Spáni.
Áfram Ísland! 🇮🇸🥊
Tengdar fréttir

Sambandið
Ársþing Hnefaleikasambands Íslands 2026
Ársþing HNÍ fór fram 9. maí 2026 í sal ÍSÍ í Laugardal. Farið var yfir starfsárið, samþykktar lagabreytingar og kosin ný stjórn.

Sambandið
Öflug byrjun árs hjá Hnefaleikasambandi Íslands
Á fyrstu mánuðum ársins hefur starfsemi HNÍ verið öflug, með fjölda móta innanlands og þátttöku íslenskra hnefaleikamanna erlendis.

Sambandið
Hnefaleikafólk ársins 2025
Hnefaleikasamband Íslands hefur valið hnefaleikafólk ársins 2025, og að þessu sinni hlutu Nóel Freyr og Hildur Kristín nafnbótina.
