Sambandið1 mín lestur
Almar Ögmundsson kjörinn varaforseti Evrópska hnefaleikasambandsins
Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur gegnir jafn háu embætti innan evrópskra hnefaleikasamtaka.
Höfundur: HNÍ

Almar Ögmundsson var kjörinn einn af þremur varaforsetum nýstofnaðs Evrópska hnefaleikasambandsins á fyrsta aðalfundi þess sem haldinn var í Prag þann 23. mars síðastliðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur gegnir jafn háu embætti innan evrópskra hnefaleikasamtaka og markar þetta tímamót fyrir Ísland í alþjóðlegu samstarfi á sviði hnefaleika.
Almar, sem hefur verið virkur í þróun og uppbyggingu hnefaleika á Íslandi og Evrópu síðustu ár, gegnir lykilhlutverki í framkvæmdastjórn hins nýja sambands og mun þar með hafa beint aðgengi að stefnumótun og ákvarðanatöku um framtíð hnefaleikaíþróttarinnar í álfunni.
Ísland átti tvo fulltrúa á fundinum, þá Almar Ögmundsson og Jón Birki Lúðvíksson.
Evrópska hnefaleikasambandið heldur fyrsta aðalfund sinn í Prag
Tékkneska hnefaleikasambandið og borgin Prag buðu nýverið til fyrsta aðalfundar hins nýstofnaða Evrópska hnefaleikasambandsins, þar sem fulltrúar 23 landsambanda komu saman og staðfestu formlega stofnun sambandsins. Á fundinum var dagskrá samþykkt einróma og samþykkt lög sambandsins, sem marka lagalegan og rekstrarlegan grundvöll starfseminnar.
Nýkjörinn forseti, Lars Brovil frá Danmörku, lagði áherslu á mikilvægi samstöðu og samvinnu innan Evrópu. Evrópska hnefaleikasambandið stefnir að því að vinna náið með World Boxing, landsamböndum, ólympíunefndum og öðrum álfusamtökum til að tryggja gagnsæi, góða stjórnsýslu, þróun íþróttafólks og sjálfbæra fjármálastjórn.
- European Boxing
- alþjóðastarf
Tengdar fréttir

Sambandið
Ársþing Hnefaleikasambands Íslands 2026
Ársþing HNÍ fór fram 9. maí 2026 í sal ÍSÍ í Laugardal. Farið var yfir starfsárið, samþykktar lagabreytingar og kosin ný stjórn.

Sambandið
Öflug byrjun árs hjá Hnefaleikasambandi Íslands
Á fyrstu mánuðum ársins hefur starfsemi HNÍ verið öflug, með fjölda móta innanlands og þátttöku íslenskra hnefaleikamanna erlendis.

Sambandið
Hnefaleikafólk ársins 2025
Hnefaleikasamband Íslands hefur valið hnefaleikafólk ársins 2025, og að þessu sinni hlutu Nóel Freyr og Hildur Kristín nafnbótina.
