Afreksstarf1 mín lestur
Ísland á leið á Norðurlandamótið í hnefaleikum
Þrátt fyrir óvæntar tafir á ferðalagi er íslenska liðið nú komið til Helsinki þar sem það tekur þátt í Norðurlandamótinu um helgina.
Höfundur: HNÍ

Þrátt fyrir óvæntar tafir á ferðalagi er íslenska liðið nú komið til Helsinki þar sem það tekur þátt í Norðurlandamótinu í hnefaleikum um helgina.
Ferðalag liðsins hófst ekki án áskorana, þar sem upprunalegu flugi var frestað fram á laugardag. Með skömmum fyrirvara tókst hins vegar að finna aðrar ferðaleiðir og kom liðið til Helsinki í morgun.
Í dag fer fram vigtun og dráttur, þar sem endanlega skýrist hvenær keppendur stíga fyrst inn í hringinn.
Fyrir Íslands hönd keppa þeir Nóel Freyr og Ronald Bjarki úr Hnefaleikafélagi Reykjavíkur, en með í för er þjálfarinn Davíð Rúnar.
Í dómarateymi Íslands verða þeir Sævar Ingi Rúnarsson og Guðmundur Kári Ágústsson.
Norðurlandamótið er mikilvægt verkefni fyrir íslenska hnefaleika og veitir keppendum dýrmæta reynslu gegn sterkum andstæðingum frá nágrannalöndum.
- Norðurlandamót
- landslið
Tengdar fréttir

Afreksstarf
Ísak Guðnason með bronsverðlaun á Eindhoven Box Cup
Ísak Guðnason vann til bronsverðlauna á Eindhoven Box Cup sem fram fór í Eindhoven í Hollandi dagana 5.-10. júní.

Afreksstarf
Íslenski hópurinn vann til þriggja gullverðlauna á Pirkka mótinu í Finnlandi
Íslenski hópurinn stóð sig afar vel á alþjóðlega Pirkka mótinu í Finnlandi dagana 8.-10. maí - alls þrjú gull, þrjú silfur og þrjú brons.

Afreksstarf
Ísak Guðnason keppir á Eindhoven Box Cup um helgina
Ísak keppir í Elite -75 kg flokki og var dreginn beint áfram í fjórðungsúrslit þar sem hann mætir þýska keppandanum Elias Nwaka.
