Afreksstarf1 mín lestur
Ronald Bjarki Manason Norðurlandameistari 2026
Ronald Bjarki Manason skrifaði nafn sitt í sögubækurnar þegar hann varð Norðurlandameistari í hnefaleikum, fyrstur íslenskra karla.
Höfundur: HNÍ

Fyrsti íslenski karlinn til að vinna Norðurlandamótið í hnefaleikum
Ronald Bjarki Manason skrifaði nafn sitt í sögubækurnar fyrr á árinu þegar hann varð Norðurlandameistari í hnefaleikum, fyrstur íslenskra karla til að ná þeim árangri.
Norðurlandamótið er eitt sterkasta mót sem íslenskir hnefaleikamenn taka þátt í ár hvert og þar mætast bestu keppendur Norðurlandanna. Ronald sýndi þar bæði mikla yfirburði og þroska í sínum bardögum og tryggði sér að lokum gullverðlaun eftir sannfærandi frammistöðu í úrslitum.
Þessi árangur markar mikilvægan áfanga fyrir íslenska hnefaleika og er til marks um þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan íþróttarinnar á síðustu árum. Sigurinn er jafnframt hvatning fyrir komandi kynslóðir keppenda og undirstrikar að íslenskir hnefaleikamenn geta staðið jafnfætis þeim bestu á Norðurlöndum.
Árangur Ronalds er einnig afrakstur samstillts átaks hans sjálfs, þjálfara og stuðningsaðila, sem hafa unnið markvisst að því að byggja upp afreksstarf í hnefaleikum á Íslandi.
Hnefaleikasamband Íslands óskar Ronaldi innilega til hamingju með þennan sögulega árangur.
- Norðurlandamót
- landslið
Tengdar fréttir

Afreksstarf
U19 landsliðið á leiðinni á HM
Landsliðsþjálfaranir Davíð Rúnar Bjarnason og Nikita Stepanov eru á leiðinni með Mihail Fedorets og Ronald Bjarka Mánason á Heimsmeistaramót U19 sem verður haldið í Budva Svartfjallalandi.

Afreksstarf
7 keppendur frá Íslandi í Hillerød
Helgina 9-11 október var haldið mót í Hillerød þar sem yfir 500 keppendur voru til staðar í fjórum hringjum.

Afreksstarf
U19 landsliðið lauk keppni á Brandenburg Cup í Þýskalandi
Mihail Fedorets og Ronald Bjarki Mánason kepptu fyrir Íslands hönd.
